Sumbl er ókeypis leiðarvísir um happy hour og barrölt í Reykjavík og á Akureyri. Hér sérðu hvað það getur og hvernig þú notar það.
Byrjaðu hér
Kortið
Síða staðar
Uppgötva
Rölt
Með vinum
Enginn er rakinn án þess að segja já. Aðeins nýjasta staðsetningin þín er geymd og henni er eytt þegar röltinu lýkur.
Eftir miðnætti
Frá klukkan eitt á nóttunni bætast við á kortið staðir sem eru enn að selja mat, svo kvöldið geti endað á einhverju að borða. Hjá hverjum sést hversu lengi er opið.
Tilkynningar
Merki
Merki eru fyrir þá sem gera Sumbl betra og passa upp á vinina. Veldu eitt til að sýna á prófílmyndinni þinni. Ýttu á merki hjá hverjum sem er til að sjá hvað það þýðir.
Í símanum
Gott að vita
Nei. Kortið, síður staða, uppáhald og þín eigin rölt virka án aðgangs. Skráðu þig inn með Google til að bæta við vinum, rölta saman, gefa stöðum einkunn, vinna þér inn merki og fá tilkynningar.
Af vefsíðum staðanna, opinberum listum og frá stöðunum sjálfum. Notendur Sumbl láta vita þegar eitthvað breytist og manneskja skoðar hverja ábendingu. Verð og happy hour breytast, svo líttu á þetta sem viðmið.
Nei. Á Sumbl eru engar auglýsingar og engin keypt sæti. Listar raðast eins fyrir alla.
Eins lítið og hægt er, og ekkert er selt eða afhent öðrum. Á persónuverndarsíðunni sérðu nákvæmlega hvað er geymt og hvernig þú eyðir því.
Opnaðu staðinn þinn í Sumbl og ýttu á „Er eitthvað rangt hér?“, eða notaðu hlekkinn í tölvupóstinum frá okkur. Skráning er ókeypis.